FORSÍÐA
DÖMUR 
HERRAR 
BÖRN 
SKÓR OG FYLGIHLUTIR  
HEIMILISVÖRUR

Um fyrirtækið
Hvernig panta ég?
PANTA ELLOS VÖRULISTANN
FLETTA Í ELLOS LISTANUM
PÖNTUNARSEÐILL
STÆRÐARTAFLA
Skilmálar
Öryggi
Hafðu samband   
   


Skilmálar

Almennt

Ellos.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Afhending vöru

Öllum pöntunum sem eiga að sendast með pósti er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Ellos.is ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Ellos.is til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Viljir þú fá vöruna senda heim þá bætast við 980 krónur í fast sendingargjald. Að sjálfsögðu er svo einnig hægt að sækja vörurnar í verslunina til okkar, og leggjast þá engin aukagjöld á pöntunina.

Gallaðar vörur

Ef þú hefur fengið gallaða eða ranga vöru, sendu okkur hana til baka og við greiðum að sjálfsögðu sendingarkostnaðinn. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að leiðrétta slík mistök.

Skilafrestur - ánægð(ur) eða peningana til baka!

Það er öruggt og þægilegt að versla hjá Ellos.is. Engri sölu er lokið fyrr en þú hefur séð vöruna og samþykkt hana. Frestur til að skila eða skipta vöru eru 14 dagar frá afhendingu. Skilyrði er að varan sé ónotuð og í upprunalegu ástandi og að kvittun/reikningur fylgi með. ATH: Gildir ekki um nærfatnað, sundfatnað og sokka.

Netverð

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Skattar og gjöld

Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.


Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða móttaka vöru á sér stað.

 


  Til baka