FORSÍÐA
DÖMUR 
HERRAR 
BÖRN 
SKÓR OG FYLGIHLUTIR  
HEIMILISVÖRUR

Um fyrirtækið
Hvernig panta ég?
PANTA ELLOS VÖRULISTANN
FLETTA Í ELLOS LISTANUM
PÖNTUNARSEÐILL
STÆRÐARTAFLA
Skilmálar
Öryggi
Hafðu samband   
   


Hvernig panta ég?

Það eru tvær leiðir til að panta. Önnur leiðin er að setja þær vörur sem þú vilt af heimasíðunni í körfu. Hin leiðin er að velja PÖNTUNARSEÐIL í vinstra dálki á heimasíðunni. Þá þarft þú að hafa vörulistann við hendina eða hafa skráð hjá þér vörunúmer, stærð og blaðsíðunúmer úr vörulistanum sem einnig er hægt að fletta hér á heimasíðunni.

Í valmyndinni til vinstri er listi yfir vöruflokka. Þegar smellt er á flokk birtist listi yfir undirflokka og þegar smellt er á undirflokk birtast þær vörur sem til eru í viðkomandi flokki, í yfirliti hægra megin á síðunni. Með því að smella á vöruheiti færðu upp nánari lýsingu, og verð.

Vörur eru settar í körfu með því að smella á viðeigandi hnapp. Þú getur alltaf skoðað innkaupakörfuna þína og breytt innihaldi hennar. Ef þú vilt eyða vöru úr körfunni smellir þú á rauða krossinn fyrir aftan viðkomandi vörunúmer. Ef þú vilt breyta stykkjafjöldanum þá slærð þú inn nýja tölu í reitinn stk og smellir á hnappinn "umreikna". Þú getur einnig tæmt körfuna alveg með því að smella á samnefndan hnapp.

Til að ganga frá kaupum smellir þú á samnefndan tengil. Þá opnast síða þar sem þú velur greiðslumáta þ.e. hvort þú vilt greiða með greiðslukorti eða fá vöruna senda í póstkröfu.  Þegar annar hvort möguleikinn er valinn opnast síða með innihaldi körfunnar og innsláttarformi. Þegar þú hefur gengið úr skugga um að innihald körfunnar sé rétt, þá skráir þú inn upplýsingar um viðtakanda og staðfestir pöntunina. Þá berst pöntunin til okkar og fer í vinnslu. Ef þú hefur valið að greiða með greiðslukorti, þá færist þú yfir á læst svæði þegar pöntunin hefur verið staðfest þar sem þú skráir inn kortaupplýsingar. 

Þú sérð að þú ert á öruggu svæði þegar venjulega slóðin http hefur breyst í https og á mörgum vöfrum birtist lítil mynd af lás neðst í hægra horninu. Þú færð senda staðfestingu á tölvupósti á það netfang sem þú gefur upp.  

Greiðsluform

Ellos.is býður upp á að greitt sé fyrir vörur með Visa eða Eurocard kreditkortum. Hafi kaupanda verið gefið upp rangt verð, t.d. vegna mistaka við innslátt eða bilunar í vinnslukerfi, þegar hann staðfesti kaup á vöru verður honum þegar í stað tilkynnt um verðbreytingu og gefinn kostur á leiðréttingu eða að hætta við kaupin.  Einnig er að hægt að fá vörurnar sendar í póstkröfu. Við vekjum athygli á því að ekki er tekin greiðsla af kreditkortum fyrir vörum sem sækja á í verslunina til okkar. Greitt er fyrir þær vörur þegar pakkinn er sóttur.

Afhending

Venjulegur afhendingartími er u.þ.b tvær til þrjár vikur frá því að pöntun berst til okkar og þar til hún er afhent kaupanda. Hægt er að fá vöruna senda heim gegn gjaldi (980 kr) eða sækja hana í verslunina til okkar.

Það getur alltaf hent að að tiltekin vara sem þú hefur pantað sé ekki til á lager og sendingunni af þeim sökum seinkað. Til þess að þú þurfir ekki að bíða eftir þeim vörum sem til eru, þá sendum við þær fyrst, en hinar um leið og þær berast. Þetta hefur að sjálfsögðu engan aukakostnað í för með sér fyrir þig - þú greiðir einungis einu sinni sendingargjald fyrir hverja pöntun, jafnvel þótt hún berist til þín í fleiri en einni sendingu. Viljir þú ekki fá vöruna þegar ljóst er að einhver töf verður á afhendingu þá getur þú alltaf haft samband við okkur og afpantað vöruna. Einnig er þér að sjálfsögðu alltaf velkomið að hafa samband við okkur til að fylgjast með pöntun þinni.  

Aðrar pöntunarleiðir

Hægt er að leggja inn pöntun símleiðis. Starfsmaður okkar tekur þá niður pöntun og veitir þér jafnframt allar nánari upplýsingar. Gott er að hafa tilbúin vörunúmerin á þeim vörum sem þú vilt panta.

Einnig geturðu sent til okkar pöntun í pósti eða á faxi. Þá er mikilvægt að skrifa allar nauðsynlegar upplýsingar á pöntunarseðilinn.

VIÐ VEKJUM ATHYGLI Á ÞVÍ AÐ HÉR Á VEFSÍÐUNNI ER EINUNGIS BROT AF ÞEIM VÖRUM SEM Í BOÐI ERU. ALLT VÖRUÚRVALIÐ MÁ SJÁ Í ELLOS VÖRULISTANUM. EF VERIÐ ER AÐ PANTA VÖRUR SEM SEM ERU Í LISTANUM EN EKKI Á VEFSÍÐUNNI ER GOTT AÐ NOTA PÖNTUNARSEÐILINN Á FORSÍÐUNNI TIL AÐ FYLLA ÚT PÖNTUN.

 
Ef einhverjar spurningar vakna er þér ávallt velkomið að hafa samband við okkur. Það er mikilvægt fyrir okkur að að heyra skoðanir viðskiptavina hvort sem þeir eru ánægðir eða hafa ábendingar um hvar og hvernig við gætum gert enn betur.
Með þinni hjálp getum við stuðlað að enn betri þjónustu.

  Til baka