|
Fólk ehf er í samstarfi Redcats Nordic AB, sem er meðal annars með Ellos vörulistann. Fyrirtækið er stærsta póstverslun Norðurlanda og er fimmtíu ára gamalt. Redcats Nordic AB er í eigu franskrar fyrirtækjasamsteypu sem er þriðja stærsta póstverslun heims og eitt stærsta tískufyrirtæki Evrópu og á m.a. tískuhúsin Gucci, Yves St Laurent og Boucheron. Þetta samstarf veitir Fólk ehf aðgang að beintengingu við pöntunarkerfi Redcats Nordic AB í Svíþjóð. Þetta hefur í för með sér ótvíræða kosti í bættri þjónustu við viðskiptavini. Lögð hefur verið mikil vinna í að aðlaga Fólk ehf pöntunar- og tölvukerfi Redcats AB og er það okkar trú að sú vinna komi til með að skila sér í bættri þjónustu við viðskiptavini okkar.
Fólk ehf. Kt. 631294-3089 Kringlunni 7 103 Reykjavík
VSK númer: 45057 Sími: 588 4422 Fax: 588 4428
Netfang: panta@ellos.is Vefslóð: www.ellos.is
Opnunartími: Mánudaga-laugardaga frá kl 10:00-18:00

|